Trefjar ehf er framleiðandi ýmissa hluta úr plastefnum. Aðalframleiðsluvaran eru bátar úr trefjaplasti, en fyrirtækið framleiðir einnig margar aðrar vörur úr trefjaplasti t.d. fiskeldisbúnað og vörur úr akrýlplastefnum. Trefjar ehf var stofnað í Hafnarfirði árið 1977 af núverandi forstjóra fyrirtækisins Auðuni N. Óskarssyni. Fyrirtækið hóf starfsemi á framleiðslu bílahluta úr trefjaplasti með einum starfsmanni. Umsvif Trefja ehf hafa aukist jafnt og þétt frá stofnun og er fyrirtækið í dag stærst og leiðandi á sínu sviði á Íslandi. Fyrirtækið hefur í dag tvær starfstöðvar í Hafnarfirði. Árið 1996 hóf fyrirtækið starfsemi að Hjallahrauni 2 í 3.500m2 húsnæði með 15.000m2 útisvæði. Árið 2008 opnaði fyrirtækið nýja sérhannaða 3.800m2 bátaverksmiðju að Óseyrarbraut 29 með 8.000m2 útisvæði.
Trefjar ehf hafa frá árinu 1979 framleitt yfir 400 smábáta af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrstu árin voru framleiddir bátar undir tegundarheitinu Skel. Á árunum mill 1980 og 1990 voru þessir bátar Skel 26, Skel 80 og Skel 86 meðal vinsælustu báta hjá íslenskum smábátasjómönnum. Hönnun Skel bátanna var ný nálgun í smíðum á smábátum. Hönnunin byggðist á gamalreyndu íslensku bátalagi “Breiðafjarðarlaginu” sem hafði sannað ágæti sitt við erfiðar aðstæður á Íslandsmiðum lengst af tuttugustu öldinni. Skel bátarnir sameinuðu kosti eldri hönnunar og nýrra tíma í framleiðslutækni. Bátarnir voru hvoru tveggja vinsælir meðal atvinnusjómanna og þeirra sem notuðu þá til skemmtunar. Skel bátarnir eru ennþá hluti af framleiðslu Trefja.
Įriš 1994 žróušu Trefjar nżja lķnu hrašfiskibįta undir nafninu Cleopatra. Cleopatra bįtarnir eru ķ dag ašalframleišsluvara fyrirtękisins. Ķ dag eru bįtarnir ķ megindrįttum framleiddir ķ fjórum stęršum Cleopatra Fisherman 31, Cleopatra Fisherman 33, Cleopatra Fisherman 38 og Cleopatra Fisherman 50. Cleopatra bįtarnir eru hrašfiskibįtar sem eru hannašir til aš standast żtrustu kröfur atvinnusjómanna um hagkvęmni, hraša og sjóhęfni. Cleopatra Fisherman bįtarnir eru sérlega rśmgóšir og sterkir bįtar meš mikla buršargetu. Žessir bįtar hafa veriš vinsęlustu bįtarnir mešal ķslenskra sjómanna undanfarin įr og hafa eigendur žeirra komiš meš aš landi allt aš 1.600 tonna afla į įri! Bįtanna er hęgt aš śtbśa til żmissa veiša eins og lķnuveiša meš sjįlfvirkum bśnaši, netaveiša, handfęraveiša, gildruveiša, togveiša eša smį nótaveiša. Žeir eru hannašir sem hrašfiskibįtar til aš standast erfitt vešurfar og sjólag į Ķslandsmišum. Cleopatra bįtarnir eru góšur og hagkvęmur kostur hvort tveggja fyrir einyrkja ķ śtgerš sem og stęrri śtgeršir.
Vörumerkið Cleopatra er vel þekkt á mörkuðum í Skandinavíu og víðar. Trefjar hafa afgreitt báta til 4 heimsálfa. Norður Evrópa er heimamarkaður Trefja ehf. Sjóhæfni ,öryggi og áreiðanleiki hefur skapað bátnum orðspor sem gerir Cleopatra að erfiðum keppinauti á öllum mörkuðum.
Sveigjanleiki er aðalsmerki hönnunar á Cleopatra bátunum. Cleopatra bátanna er hægt að fá í ýmsum útfærslum til margskonar atvinnustarfsemi á sjó. Sjóstangaveiði, farþegaflutningar og hafrannsóknir eru dæmi um verkefni sem Cleopatra bátar hafa verið afgreiddir í. Trefjar hafa einnig boðið Cleopatra bátanna í skemmtibáta útfærslum. Skemmtibáta útgáfur eru fáanlegar eftir óskum hvers og eins. Bátarnir eru því vinsælir hjá þeim sem óska eftir sérhönnuðum skemmtibát sem hefur sjóhæfni sem hæfir erfiðu sjólagi við Ísland.
Allir Cleopatra bátar eru 100% íslensk framleiðsla. Bátarnir eru byggðir eftir Norðurlandareglum um smíði báta. Trefjar hafa lagt sig fram um að vera leiðandi afl á þeim mörkuðum sem það starfar á.
|