Hraði, burðargeta og gæði! Flaggskip íslenska smábátaflotans undanfarin ár.
Góður árangur Cleopatra 38 byggist á hágæðasmíði og hönnun sem uppfyllir kröfur atvinnusjómanna sem starfa allt árið um kring. Báturinn er byggður eftir norðurlandareglum með stöðugleika, þægindi, hraða, burðargetu og sjóhæfni að leiðarljósi.
Báturinn er búinn hágæða veiðibúnaði og hægt er að fá hann útbúinn fyrir línuveiðar, netaveiðar, handfæraveiðar og gildruveiðar.
Cleopatra 38 - Rolls Royce hraðfiskibátanna og trúlega öflugasti báturinn í sínum flokki. Stór fiskilest allt að 18rúmmetrum hefur skilað eigendum Cleopatra 38 allt að 1500tonna afla á ári ! Báturinn fyrir atvinnumanninn sem óskar góðs vinnurýmis og þæginda í lengri ferðum allt árið.
Mjög rúmgott vinnudekk. Rúmgott stýrishús með setustofu. Lúkar með eldunaraðstöðu og svefnplássi fyrir allt að fjóra.
Fyrirkomulag bátsins er ákaflega sveigjanlegt og hægt er að útbúa bátinn á marga vegu til ýmissa nota t.d. lúxus sjóstangveiða, köfunar, hafrannsókna og farþegaflutninga.
SMÍÐI Handlagt trefjaplast Isotals gelhúð og polyestri Botnfarvi Vinnudekk með kjarna úr balsaviði Sjóþolin krossviður í þilum og stífingum
FYRIRKOMULAG Þrjú vatnsþétt rými: Lúkar/stýrishús, fiskilest og vélarrúm Rúmgóður lúkar með eldunaraðstöðu Stór fiskilest fyrir kör Vélarrúm aftast díselvél með V-gír
INNRA RÝMI Tekk innrétting 3-4 kojur í fullri stærð Borðsalur fyrir 4 í brú Eldunaraðstaða með gaseldavél og vaski Sjósalerni | ÍHLUTIR Stjórntæki fyrir vél Rafgeymar Rúðuþurrkur Vökvastýri Flipastýri VHF Talstöð Útvarp/geislaspilari Kompás Flapsar Sjálfvirkar og handstýrðar lensidælur
| VALMÖGULEIKAR Landtenging 230V Örbylgjuofn Kaffivél Ísskápur Sjónvarp / DVD spilar Loftkæling Upphitaðar rúður Olíumiðstöð Vatnsmiðstöð Sjálfstýring GPS plotter PC - tölva Dýptarmælir GMDSS Áriðill/Hleðslutæki CD player Smúldæla Leitarljós Ljósavél Bógskrúfa Yfirbyggt vinnudekk
Annar búnaður samkvæmt óskum. | ÖRYGGISBÚNAÐUR Lífbátur með öryggisbúnaði Bjarghringur Rekkverk og handlistar Öryggisstigi Sjálfvirkt slökkvikerfi Handslökkvitæki Akkeri og keðja Siglingaljós Aðvörunarkerfi |
| Lengd (Loa) | 11.3m (37’ 1’’) | | Lengd (skutgeyma) | 12.5m (41’ 0’’) | | Lengd (pallútgafa)* | 11.9m (39’ 1’’) | | Breidd | 3.8m (12’ 6’’) | | Mótuð dýpt | 1.5m (4’ 11’’) | | Djúprista | 1.1m (3’ 7’’) | | Vinnudekk | 21.7m2 (234 ft2) | | Vinnudekk (svalir) | 26.9m2 (290 ft2) | | Brúttótonn** | 14.9 | | Brúttórúmlestir*** | 11.9 | | Olíugeymar | 1500 lítrar (396 US gall.) | | Vatnsgeymar | 120 lítrar (32 US gall.) | | Fiskilest | 18m3 (636 ft3 ) | | Aðalvél**** | | Caterpillar C9 | 503hp | 8.8L | | Caterpillar C12 | 660hp | 12L | | Cummins 6CTA8.3M | 430hp | 8.3L | | Cummins QSM11 | 610hp | 10.8L | | Doosan LO126TI | 400hp | 11.1L | | Scania DI12 | 625hp | 11.7L | | Volvo Penta D9 | 500hp | 9.4L | | Volvo Penta D12 | 650hp | 12.1L | | Yanmar 6HYM-ETE | 700hp | 13.7L | | Tveggja véla uppsetningar: | | Volvo Penta IPS 450 | 2 x 330hp | 5.5L | | Volvo Penta IPS 500 | 2 x 370hp | 5.5L | | 2 x Yanmar LY-STP | 2 x 370hp | 5.1L |
| | Gírkassi | | ZF | 325IV | 2.03:1 | | ZF | 302IV | 2.18:1 | | ZF | 286IV | 2.01:1 | | 2 x | ZF80IV | 2.01:1 |
| | Skrúfubúnaður | Fjögra eđa fimm blađa skrúfa | | Tophraði | 18 - 37 hnútar | | Vinnuhraði | 12 - 22 hnútar | | Vinnugeiri | 370 sm | | | | * Pallur er valmöguleiki ** Samkvæmt íslenskum reglum *** Samkvæmt íslenskum reglum **** Aðrar vélar samkvæmt óskum |
Línubeitningakerfi Línuveiðar Netaveiðar Handfæraveiðar Gildruveiðar
|