EnglishSpanishNorsk bokmalFrançaisForoyarIcelandic
14. January 2005
Ný Gugga til Ísafjarðar
Útgerðarfélagið Guðbjartur ehf á Ísafirði fékk nú í janúar afhentann nýja Cleopatra 38 bát. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Guðbjörg ÍS-46 eins og fyrri skip útgerðarinnar. Skipstjóri á bátnum er Guðbjartur Ásgeirsson. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.
Read more...
 
13. December 2004
Nýr Narfi afgreiddur til Stöðvarfjarðar
Útgerðarfélagið Lukka ehf á Stöðvarfirði fékk í síðustu viku afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa feðgarnir Ársæll Guðnason og Guðni Ársælsson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Narfi SU-68 og leysir af hólmi eldri Cleopötrubát. Skipstjóri á bátnum er Ársæll Guðnason. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Narfi er af gerðinni Cleopatra 38 þeirri sömu og aflabátarnir Guðmundur og Hrólfur Einarssynir ÍS.
Read more...
 
28. February 2004
Ný Cleopatra 38 til Drangsness
Guðmundur Ragnar Guðmundsson útgerðarmaður frá Drangsnesi fékk fyrir nokkru afhentan nýjan Cleopatra 38 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Þetta er sjötti bátur þessarar gerðar sem Trefjar selja hér innanlands á innan við einu ári. Báturinn er systurskip Guðmundar og Hrólfs Einarssona ÍS, Huldu Kela ÍS, Gísla Súrssonar GK og Ólafs HF.
Read more...
 
12. January 2004
Ný Cleopatra 38 til Hafnarfjarðar
Útgerðarfélagið Ólafur ehf. í Reykjavík fékk um áramótin afhentan nýjan Cleopatra 38 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Þetta er fimmti bátur þessarar gerðar sem afhentur hefur verið frá því í fyrra. Nýi báturinn er systurskip Guðmundar og Hrólfs Einarssona ÍS og Huldu Kela ÍS sem komu til Bolungarvíkur á síðasta ári. Auk þeirra var Gísli Súrsson GK seldur til Grindavíkur.
Read more...
 
<< Start < Prev 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Next > End >>

Results 69 - 72 of 73

Trefjar LTD - Óseyrarbraut 29 - 220 Hafnarfjörður - ICELAND - Tel :(354) 550-0100 - Fax :(354) 550-0120 - cleopatra@cleopatra.is